Friday, February 11, 2005

Hvað svo

Ég er þreyttur. Það er búið að reka mig úr vinnunni, eða ég geri fastlega ráð fyrir því. Mér er skítsama. Ég vil helst bara sofa. En ég þarf að sækja stelpuna á leikskólann bráðum. Ég ætla að leggjast inn í rúm og sofna með henni á eftir og halda utanum hana. Kannski fer ég að gráta. Það verður erfitt að segja henni að mér hafi mistekist. Ætli ég hafi ekki vitað það allan tímann. En það er vont að fá höfnun, rosalega vont frá manneskjunni sem ég elska út af lífinu. Ég ætla ekki að skrifa meira. Neðst er lagið sem við tókum. Ég vil hinsvegar þakka söngvaranum fyrir að koma. Ég mat það mikils og krakkarnir voru algjörar hetjur þó að flutningurinn hafi ekki verið fullkominn. Heldur ekki hægt að ætlast til þess af fötluðum krökkum. Við gerðum okkar besta. Núna raula ég hinsvegar lag Damien Rice, hefði kannski átt að taka Cheers Darling í staðinn fyrir Sail away. Ætli sársauki manns verði svo ekki opinberaður í DV, þó ég viti ekki hvaðan þessi ljósmyndari kom. Og hvað nú, mig langar að hitta stelpurnar mínar. Mig langar að taka utanum þær og segja þeim að ég elska þær. Enn í staðinn sjá þær pabba sinn bolað í burtu af manni sem hefur ekkert með þær að gera. Það var vont að sjá þær gráta.

cheers darlin' - Damien Rice - Sail away fyrir neðan.here's to you and your lover boycheers darlin'i got years to wait around for youcheers darlin'i’ve got your wedding bells in my earcheers darlin'you give me three cigarettes to smoke my tears awayand i die when you mention his nameand i lie i should have kissed youwhen we were running in the rainwhat am i darlin'?a whisper in your ear?a piece of your cake?what am i darlin?the boy you can fear?or your biggest mistake?cheers darlin'here's to you and your lover man

Sail awaySail away with me honeyI put my heart in your handsSail away with me honey now, now, nowSail away with meWhat will be will beI wanna hold you nowCrazy skies all wild above me nowWinter howling at my faceAnd everything I held so dearDisappeared without a traceOh all the times I've tasted loveNever knew quite what I hadLittle Darling if you hear me nowNever needed you so badSpinning round inside my headSail away with me honeyI put my heart in your handsSail away with me honey now, now, nowSail away with meWhat will be will beI wanna hold you nowI've been talking drunken gibberishI've been puching at the barsTrying to find some explanation hereFor the way some people areHow did it ever come so farI wanna hold you nowSail away with me honeyI put my heart in your handsSail away with me honey now, now, nowSail away with meWhat will be will beI wanna hold you now

10 Comments:

At 7:06 AM, Anonymous Anonymous said...

11. feb 2005

Hvaða þáttur?

Ágúst B

 
At 7:07 AM, Blogger tomas said...

Hvaða þáttur!!! Ertu ekki að grínast?

 
At 7:07 AM, Anonymous Anonymous said...

11. feb 2005

Nei, ég er ekki að grínast. Ertu að tala um væntanlegan þátt um þig eða einhvern þátt sem þú starfar við núna?

Ágúst B

 
At 7:07 AM, Blogger tomas said...

Ég hélt að orðið allir vissu það, þar sem var talið að það hefði lekið út. Þú verður þá að komast að því sjálfur, annars ætti það að koma í ljós fljótlega. Já, ég starfa við hann. Meira get ég ekki sagt í augnablikinu.

 
At 7:08 AM, Anonymous Anonymous said...

11. feb

Kæri herra, ef þér eruð í sjónvarpinu þá er það varla leyndarmál?????? Má ekki svala þessari forvitni minni núna?

Ágúst B

 
At 7:08 AM, Blogger tomas said...

Þú ferð varla að segja frá innihaldi bókar þinnar á vettvangi sem allir geta komist í áður enn þú gefur hana út. Sama gildír víst um þetta og ég færi að rjúfa trúnað ef ég færi að gasbra því á þessari síðu.

 
At 7:09 AM, Blogger tomas said...

Þú ert að koma mér í mikil vandræði Ágúst.

- Þarna hafði Ágúst sett inn á heimasíðu sína eftirfarandi texta:

Allir sem vettlingi geta valdið. Í hvaða sjónvarpsþætti er Tómas Jónsson, fallegasti maður í heimi.

 
At 7:10 AM, Anonymous Anonymous said...

11. feb

Afsakið, ég er hættur. Ég skal þurrka út síðustu færslu hjá mér.

Ágúst B

 
At 7:10 AM, Blogger tomas said...

Takk fyrir. Eins geri ég með þennan spjallþráð hér

 
At 7:10 AM, Anonymous Anonymous said...

12. feb

afhverju fjarlægirðu öll komment?

 

Post a Comment

<< Home