Monday, January 31, 2005

Tónleikar

Eitt sem gleymdist. Það verða tónleikar í fyrstu vikunni í febrúar. Ég hef verið að kenna nokkrum fötluðum krökkum á hljóðfæri. Við verðum með frábæran gestasöngvara og ég hlýt að telja að þetta sé einstakt. Þessir krakkar eru frábær. Þau eru fordómalaus, yfirleitt alltaf glöð og reyndar alltof viljug til að læra. Þau sem komast ekki geta örugglega séð frá þessu í fréttunum ef þau sjá sóma sinn í að segja frá þessu. Annað eiga þau ekki skilið. Ég hef alla vega mjög góð sambönd.

Saturday, January 08, 2005

Úrslitastund

Á eftir mun ég spila fyrir utan hús konunnar minnar. Þetta er úrslitastund í mínu lífi. Ég hef ákveðið að fara með vistmennina sem ég er að kenna tónlist einu sinni í viku og taka með þeim fallegt ástarlag sem á að segja hug minn til hennar.